laugardagur, febrúar 26, 2005

Fleiri myndir

Búin að bæta við öðrum link með fleiri myndum... Big Bear er æði! Við ætlum að fara aftur þangað í sumar, þegar snjórinn er farinn!

Ég fór í dag á smá námskeið til að gerast sjálfboðaliði hjá dýraathvarfinu sem rekið er af Irvine-borginni. Það var bara fínt, mér líst mjög vel á að nýta tímann í eitthvað verðugt á meðan ég er ekki að gera neitt. Það eina sem ég þarf að lofa þeim er að ég muni tileinka þeim amk. 8 tímum á mánuði í lágmark 6 mánuði. Það er nú ekkert stórfenglegt, og ég tel að ég muni hafa bara gaman af.

Er enn að bíða eftir meðali handa grísnum :/ Virðist vera eitthvað ferlega lengi að póstast hingað frá Kansas. Hann er þvílíkt að koma til, verða hugrakkari með allt. Ég hitti konu í dag á námskeiðinu og hún sagðist vita um hugsanlegan vin handa Dusty! Við ætlum að reyna að koma á fundi og sjá hvort þeim strákunum líki við hvorn annan, og ef svo, þá verðum við með tvo grísalinga! Víí!!

Jæja, maðurinn minn er að stara á mig, hann vantar smá athygli, greyið! ;)

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já ég held það eigi voða vel við þig að hugsa um heimilsilausa fjórfætlinga.

Erum farin að telja niður dagana fram að útlandaferðinni. Kannski þú látir mig fá númer til að hringja í þegar ég er komin þarna út. Þá getum við ákveðið hvort og hvenær við getm hist.

Pála púrra

2:25 f.h.  
Blogger Svava said...

ÆÐISLEGAR MYNDIR ! Snjór er flottur !! Eeeenn. Ekki vera of vongóð með gvígví,tveir karlar eru sjaldan góð blanda nema þeir þekkist frá fyrstu tíð, og oft ekki einu sinni þá :( Ekki nóg nb að láta þá hittast einu sinni og búa svo saman, verða að prófa samveru í amk einn dag.

3:40 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home